Danni að steypa og bulla.  

<..:: BlogDescription ::..>

..:: Linkar ::..

Húmor
Batman
Tilveran
Hugi.is

..:: Teiknimyndir ::..

Penny Arcade
Dorktower
PvP Online
Nodwick
Warbucket
Basil Flint
RPG world

..:: Bloggarar ::..

Andri Fluguhaus
Svan
Dússý
Hjalti


 
Í miðjum prófum.... bleh

Jæja, núna á maður að vera að læra en hér er maður í staðinn að blogga.... ótrúlegt hvað maður nennir að gera þegar maður á að vera að læra. Það er ekkert smá skrýtið hvað allt verður áhugavert þegar maður á að vera læra, það liggur við að maður fari að taka til... sem er kannski frekar gróft en það gæti gerst.
.ble

  posted by Danni @ 6:46 PM


laugardagur, desember 06, 2003  

 
Vááááááá

Núna verður allt brjálað því Dannipalli er byrjaður að blogga aftur.
Því núna er hann kominn með lappa og getur bloggað næstum hvar
sem er.... HAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHAHA

  posted by Danni @ 5:57 PM


mánudagur, september 08, 2003  

 
Star Wars Hipphopp

JÁ!!! ég veit að þetta var líka á tilverunni en þetta er snilld ef mar byrjar að hlusta vel á textann! Sjáið þetta snildar flash hér

  posted by Danni @ 10:56 PM


sunnudagur, september 29, 2002  

 
Nýnemaballið

Jæja, nýnemaballið skýrt út. Bekkjarfélagi hélt partý fyrir bekkinn fyrir ballið sem var mjög gott... eini vandinn var að komast þangað. Þetta var í sveitinni (Grafarvogi) og djúpt inn í honum. En ég var tiltölulega fljótur að finna þetta af því að ég tók símaskránna með mér!!! Húrra fyrir því. Síðan var mikið drukkið (2kippur held ég). Síðan þegar klukkan var að ganga hálf tólf það var byrjað að raða í bíla og nokkrir valdnir edrú menn keyrðu á ballið. Sungið var í bílnum og mikið gaman og mikið fjör. Síðan fór maður á ballið og fór maður inn. Ég hitti svo vel á að koma inn rétt áður en skólahljómsveitin Hanz byrjaði að spila svo að ég náði öllum lögunum með þeim ( þekki ca. helminginn í hljómsveitinni + rótarann ). Þeir voru kengimagnaðir. Síðan þegar þeir voru búnnir að spila var ég bara ekkað að chilla, tala, bulla, vera fullur og allt það. Síðan reddaði maður sér fari heim og þá er sagan búin.

  posted by Danni @ 11:45 AM


föstudagur, september 27, 2002  

 
Nýnemaballið í kvöld

Ble ble bla bla.... nenni ekki að skrifa hvað ég ætla að gera.

  posted by Danni @ 3:01 PM


miðvikudagur, september 25, 2002  

 
Bjórlagið

Mesta snilld er þetta hérna. Þetta var að vísu á Tilverunni en mér er sama... ég pósta þessu hingað útaf því að þetta er algjör snilld!!!

  posted by Danni @ 7:06 PM


mánudagur, september 23, 2002  

 
Andri Þór = Fluguhaus

Hann Andri þór (hann er líka asnalegur) er kominn með sitt eigið blogg og hef ég sett það í link listann minn. Sjáið síðunna hans Hér

  posted by Danni @ 7:47 PM


föstudagur, september 20, 2002  

 
Tilraunin hans Hjalta

Endilega kíkja á síðuna hans Hjalta og sjá kók tilraunina hans. Má búast við "update" á þessari skýrslu þar sem breytingar kunna að verða.

  posted by Danni @ 11:18 PM


fimmtudagur, september 12, 2002  

 
Starcraft og Svan

Hann Svan á víst ekki eftir að vera ánægður vegna þessara skrifa sem ég skrifa hér en hann verður bara að hafa það. Þetta gerðist fyrir langa löngu ( en er samt satt ) að hann Svan var eitthvað að reyna að fá mig til að spila map sem einhver hafði búið til með map editor-num. Þetta skemmtilega map fjallaði um að hver Player ( í þessu tilfelli Svan og ég ) fengum sitthvorn Vulture-Class Hover Bike (eða Vulture eins og hann er venjulega kallaður). Síðan fengum við mjög einfaldar leiðbeiningar um að við ættum að keyra í clockwise hringi....... Eitthvað hefur vafist fyrir honum Svan í þessum leiðbeiningum þar sem að þegar við byrjuðum í mappinu þá byrjaði hann að fara anti-clockwise hringi. Ég ákvað að ekkert segja honum strax svo að ég myndi ná að safna inn stigum. Nokkrir hringir líða og ég ákveð að spyrja hann hvort að hann viti í hvaða átt clockwise sé. Hann svarar játandi og heldur áfram að keyra anti-clockwise. Ég reyni að benda honum kurteisislega á að hann sé að fara í vitlausa hringi en hann harðneitar því að hann sé að fara anti-clockwise. Ég segi honum að kíkja á score-ið hjá okkur og ég er kominn með mikið meira score en hann. Þá byrjar þessi þrjóski maður að gefa eftir og byrjar að fara í hina áttina. Eftir þetta þá var hann náttúrulega búinn að tapa og ég rosa glaður yfir að hafa unnið hann Svan OG hafa tekist að láta hann samþykkja eitthvað sem hann var að gera rangt. Þetta er sjaldgæft og var mikið gert grín af honum. Ekki hef ég hugmynd af hverju ég var að spá í þessu núna en ég bara varð að skrifa þetta hingað til að minna Svan á þetta.
CLOCKWISE SVAN, CLOCKWISE

p.s. NO OFFENCE : )



  posted by Danni @ 5:24 PM


þriðjudagur, september 10, 2002  

 
EKKI SVINDLA Í TÖLVULEIKJUM

Það að svindla í tölvuleikjum er niðurlæging og viðbjóður. En ef þið svindlið þegar þið eruð að spila við einhvern í gegnum netið þá má einhver koma og gubba á ykkur og fá franskan "taunter" til að hrópa "taunts" á ykkur t.d. I Fart in you general direction. Og hérna er teiknimyndasaga sem Warbucket gerði um svindl. Sjá hana HÉR

  posted by Danni @ 5:09 PM



 
Sjálfshyggju Heimspeki
Þessi e-maill sem hann Svan fékk frá sameiginlega vini okkar Andra fjallar um Sjálfshyggju Heimspeki. Þetta byrjaði víst allt þegar hann var að kaupa einhverjar bækur og sá heimspekibók á ódýru verði og keypti hana. Byrjaði að lesa hana og fannst þessi Sjálfshyggju Heimspeki alveg rosalega skemmtileg nema hvað, hann ákveður að deila því með öllum sem hann þekkir, er fullur í partýi að reyna að koma fullu fólki skilningi um að það sem það sér ekki, heyrir ekki o.s.frv. sé ekki til. T.d. að ég veit ekki hvort að eitthvað sé til fyrir utan herbergið sem ég er í núna útaf því að ég sé það ekki. Bara láta Svan vita að hann hlakkar ekki svona mikið til Matrix 2 : ).

P.S. Já, langt síðan ég skrifaði síðast. Get ekki bloggað upp í skólanum : (

  posted by Danni @ 10:33 AM


föstudagur, september 06, 2002  

 
Robin Williams játar aðra fíkn - Internetið
Hann spilar tölvuleiki á netinu og þ.á.m. Warcraft 3 og Day of Defeat (sem er Modification á Half-Life). Lesið alla greinina Hér

  posted by Danni @ 12:12 PM


sunnudagur, ágúst 25, 2002  

 
Svan
Til hamingju með afmælið Svan. Núna ert þú orðinn hundgamall og þarf örugglega bráðum að mata þig með skeið. HÚRRA!!!. Fyrir þá sem ekki vita er hann orðinn 21ára gamall.


  posted by Danni @ 12:03 PM



 
Verðbréf og fjárfestingar
Ég sá helvíti skemmtilega grein í Fréttablaðinu ( 22.ágúst. 2002 ) og datt í hug að setja hana hingað. Enjoy.

Ef þið hefðuð lagt 100 þúsund krónur í að kaupa hlutabréf símafyrirtækisins Nortel fyrir einu ári væri verðmæti verðbréfanna í dag um 4.900 krónur. Hefði sama upphæð verið lögð í orkurisann Enron væri sú eign í dag um 1.650 krónur. Hefðuð þið keypt bréf í símafyrirtækinu World Com fyrir þúsund krónur væri innan við 500 krónur eftir. Hefði peningurinn hins vegar verið notaður til að kaupa bjór fyrir einu ári væri hægt að drekka bjórinn núna og fara síðan með dósirnar í endurvinnslu og hafa um 21.400 krónur upp úr því.
Þegar ofangreint er athugað virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að drekka stíft og endurvinna.


Ekki slæm fjárfesting það. Kannski að maður fari núna að byrja að safna bjórdósunum sem maður drekkur. : =)

  posted by Danni @ 5:29 PM


föstudagur, ágúst 23, 2002  

 
Beer troubleshooting
Rakst á þetta þegar ég var að kíkja á batman.is. Kíktu á það hér.

  posted by Danni @ 10:18 AM


miðvikudagur, ágúst 21, 2002  
Powered By Blogger TM